Hjalti Hannesson

Þarftu aðstoð með Salesforce?

Um mig

Ég hef unnið með Salesforce síðan 2017 og hef BSc gráðu í Tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Síðustu árin hef ég, og geri enn, byggt og viðhaldið flóknum lausnum fyrir stærri fyrirtæki á Íslandi.

Hinsvegar þurfa ekki öll fyrirtæki heila deild til að sinna Salesforce umhverfinu. Ég býð upp á sveigjanlega aðstoð hvort sem þú þarft að fínstilla núverandi uppsetningu, innleiða nýja lausn, leysa óvænt vandamál eða hreinlega athuga hvort hugmyndin ykkar sé útfæranleg (það er næstum allt hægt í Salesforce).

Þjónusta

Grunnvirkni

Uppsetning og sérsniðin aðlögun á útliti og virkni Salesforce lausnarinnar til að mæta þörfum ykkar betur

Skýrslur og Listar

Hönnun og uppsetning skýrslna og listayfirlita (List Views) til að veita betri yfirsýn yfir þau gögn sem þið hafið aðgang að

Bakvinnsla

Þróun á Apex klösum og flæðiverkum (flows) til að auka sjálfvirkni og skilvirkni í Salesforce lausninni ykkar

LWC Þættir

Smíði á Lightning Web Components til að búa til sérsniðnar lausnir og bætta notendaupplifun í Salesforce umhverfinu ykkar

Salesforce Astro

Starfsreynslan mín

VÍS Tryggingar hf - Salesforce forritari

2025-XXXX

Starfa hér í dag í frábæru reynslubolta teymi með flotta Salesforce lausn. Hér hef ég unnið í að betrumbæta Salesforce Financial Services með LWC gluggum, tengingum við önnur kerfi með tilheyrandi bakendavinnu, sem Apex kóða og flæðum..

Sýn hf – Salesforce forritari

2024-2025

Mikið unnið með LWC glugga, bakvinnslu og svo innleiðingu á Vlocity lausninni.

Gangverk – Salesforce forritari

2022-2024

Vann í lausn þar sem við vorum að taka við áframhaldandi þróun á Salesforce umhverfi. Tengingum við bókunarvélar, smíði og hönnun á nýjum fídusum eftir þörfum kúnnans ofl.

Icelandair ehf – Salesforce forritari

2019-2022

Töluvert stærra teymi þar sem ég vann eingöngu í Salesforce lausn Icelandair sem er ótrúlega flott og þroskuð lausn. Smíðuðum marga nýja fídusa ásamt því að viðhalda tengingum við önnur kerfi.

Deloitte ehf – Salesforce forritari/ráðgjafi

2017-2019

Var partur af litlu teymi sem sá um viðhalt á eldri lausnum ýmissa Íslenskra fyrirtækja ásamt því að taka þátt í innleiðingu með leiðsögn Deloitte í Belgíu.